Saturday, February 2, 2013

Laugardagur

Átti mjög svo dásamlegan laugardag. Hitti mæðgurnar Diljá og Ugglu í Laugardalnum þar sem fyrrnefnd var á fimleikaæfingu, byrjuðum á að fara með Krákuna í gönguferð í grenjandi rigningu, fundum úlfaspor á göngustíg og þeystumst svo heim. 

Var búin að baka þessi bananabrauð með Nutella sem ég fann á síðunni Ljúfmeti & LekkerheitÞað er skemmst frá því að segja að það er hálft brauð eftir :) dásamlega gott alveg! 

Ljúfastur laugardagur. Ég er altekin af löngun að komast í sveitina, ef vel á að vera verð ég að komast einu sinni í mánuði. Fór síðast um miðjan nóvember svo það er ekkert skrítið að  tilfinningin sé orðin knýjandi, en nú erum við komin á almennilega bifreið svo ég víla ekkert fyrir mér að þeysast yfir snævi þaktar heiðar. Eh sem var ekkert svakalega spennandi á ógeðis polo en er bara spennandi á löggulegacy :)







No comments:

Post a Comment